BackSaver verður með Mikra á IceFish 2026. Gestir geta skoðað og prófað BSMST og rætt sín verkefni beint við fulltrúa BackSaver og Nimo-KG.
Prófaðu BSMST á IceFish
BackSaver verður með okkur á básnum á IceFish 2026. BSMST verður á staðnum alla sýninguna og gestir fá tækifæri til að skoða búnaðinn vel og prófa hann sjálfir.
Búnaðurinn er ætlaður fyrir verkefni þar sem lyftingar og meðhöndlun geta verið krefjandi og markmiðið er að gera daglega vinnu léttari fyrir starfsfólk.
Komdu með verkefnið þitt
Fólk frá BackSaver og Nimo-KG verður með okkur á básnum. Við hvetjum gesti til að koma með dæmi um lyftingar, meðhöndlun eða endurtekin verkefni úr sinni starfsemi og ræða mögulegar lausnir beint við fólkið sem þekkir búnaðinn.
Þannig er hægt að ræða raunveruleg verkefni og skoða hvað gæti hentað í hverju tilviki.
Sýningarkjör á BackSaver
Sérstök sýningarkjör verða í boði á BackSaver búnaði meðan á IceFish 2026 stendur.
Kíktu við hjá Mikra, prófaðu BSMST og taktu spjallið við okkur. Við hlökkum til að sjá ykkur á sýningunni.


