Um okkur
Sjálfvirkni í 50 ár
Klaki hefur í yfir 50 ár sérhæft sig í framleiðslu sjálfvirks búnaðar fyrir matvæla- og framleiðsluiðnað, til sjós og lands.
Öruggar og áreiðanlegar lausnir, gott aðgengi að þjónustu og auðþrifanleg hönnun eru helstu einkenni framleiðslunnar.
Auk tækjaframleiðslu sér Klaki um alhliða verkþjónustu á sjálfvirkum framleiðslulínum og framleiðslukerfum, og getur boðið hátæknilausnir með iðnaðar- og samvinnuþjónustum, og gervigreindarvæddri myndgreiningu.