Við erum stolt að tilkynna að Klaki er orðinn viðurkenndur aðili að „Rolling On Interroll“ samstarfinu, sem er alþjóðlegt net sérfræðinga í vörumeðhöndlun og færslulausnum, og var komið á fót af Interroll Group.
Sem „viðurkenndur samstarfsaðili“ hefur Klaki uppfyllt allar lykilkröfur í þessum samstarfsflokki, þar á meðal að ljúka vöruþjálfun og setja upp helstu lausnir Interroll með góðum árangri.
Með þessu samstarfi styrkjum við stöðu okkar í að afhenda áreiðanlegar, hágæða lausnir byggðar á margreyndri tækni frá Interroll og tengjum okkur við alþjóðlegt net leiðandi fyrirtækja í geiranum.
Kynntu þér samstarfið nánar á: rollingoninterroll.com/klaki

