Úrsláttavél á loðnuvertíð

Á loðnuvertíðinni núna frystir Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum allt að 150 tonn af loðnurognum á dag.

Fyrir vertíðina fékk Vinnslustöðin útsláttartæki ásamt innmötunarbúnaði frá Klaka stálsmiðju ehf.

Samkvæmt upplýsingum frá verkstjóra í frystingunni framleiddi úrsláttavélin um 12 pönnur á mínútu og gekk vinnslan vel.

Það má geta þess að við frystingu 150 tonna fara fram yfir 16 þúsund úrslættir.

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta