Klaki Draumaland

Velferð starfsmanna skiptir Klaka miklu máli og þess vegna hefur fyrirtækið ákveðið að greiða launaviðbætur til þeirra sem huga að svefni og heilsu utan vinnutíma.

Í byrjun mars hóf fyrirtækið í tilraunarskyni að bjóða starfsfólki bónusgreiðslur ef það nær ráðlögðum svefni. Leitað var ráða sérfræðinga fyrirtækisins Betri Svefn við framkvæmd verkefnisins auk þess sem boðið var upp á meðferðarúrræði þeirra fyrir þá sem þess þurfa.

Markmið verkefnisins eru fjölbreytt en trú fyrirtækisins er sú að góður svefn bæti heilsu og vellíðan starfsmanna, auki framleiðni og lágmarki streitu og slysatíðni.

Verkefnið hefur hlotið góðar viðtökur hjá starfsfólki og ótrúlegur árangur hefur náðst á fyrstu vikum. Í ljósi þess hefur fyrirtækið ákveðið að gera verkefnið að hluta af staðlaðri launaskipulagi fyrirtækisins og verður því áfram greitt fyrir að huga að heilsu og svefni utan vinnutíma.

Ónógur svefn og svefnskortur er vaxandi vandamál sem hefur neikvæð áhrif á heilsu og vellíðan fólks. Samkvæmt rannsóknum getur ófullnægjandi svefn valdið fjölda andlegra og líkamlegra sjúkdóma með tilheyrandi álagi á heilbrigðiskerfið og aukið veikindahlutfall starfsmanna um allt að 100%.

Rannsóknir sýna einnig að nægur svefn skilar lægra veikindahlutfalli, lægri slysatíðni, betri ákvarðanatöku og eykur líkur á jákvæðu starfsumhverfi fyrirtækja.

Klaki vill sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að stíga þetta skref og hvetur önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta