Nýr kafli í 48 ára sögu Klaka.

Viðtal við Pál og Óskar birtist nýlega í tímariti Sóknarfæra og má sjá hér að neðan.

Nýr kafli í 48 ára sögu Klaka

Vél- og verkfræðingarnir Óskar Pétursson og Páll S. Helgason hafa
Bætt í hóp hluthafa Klaka ehf. í Kópavogi.

„"Við sjáum mikil tækifæri í að byggja ofan á þann grunn sem Klaki hefur lagt á undanförnum árum, þróa áfram tækið sem við framleiðum, auka sjálfvirkni, nýta nútímatækni til að einfalda stjórn búnaðarins, auka nýsköpun í framleiðslu okkar og geta boðið upp á algerlega sjálfvirkar lausnir og róbóta,segja verkfræðingarnir Óskar Pétursson og Páll S. Helgason sem á síðasta ári gengu til liðs við bræðurna Berg og Lárus Ólafsson í eigendahópi Klaka ehf. í Kópavogi. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á ryðfríum tækjum og búnaði fyrir sjávarútveg og aðrar greinar.       

Nýir möguleikar í tækjaframleiðslu og aukin áhersla á þróun

„Við vorum svo heppin að kynnast þeim Bergi og Lárusi sem þróuðust þannig að við komum inn í reksturinn í fyrra. Þeir hafa rekið Klaka síðustu tuttugu árin og munu starfa hér áfram svo lengi sem þeim sjálfum sýnist. "Að okkar mati nýtist menntun okkar og þekking vel til að byggja ofan á það sem fyrir er," segja þeir Óskar og Páll sem báðir eru verkfræðingar og vélfræðingar. Páll er menntaður vélaverkfræðingur í róbótík en Óskar er menntaður rafmagnsverkfræðingur og forritari. "Klaki hefur í nærri hálfa öld framleitt vélabúnað, færibönd og ýmsar sérlausnir. Við höfum vel búna stálsmíðaverkstæði og með okkur bætist við mun geta okkar í tækjaframleiðslu aukast enn frekar en áður," segir Páll en sem dæmi um vinnslubúnað sem Klaki framleiðir má nefna færibönd, fiskidælur, fiskilyftur, úrsláttavélar og frystipönnur. Fyrirtækið sinnir einnig ýmsum sérsmíði og nú hafa bætst við ný gerð stillanlegra vinnupalla og ýmsar lausnir í stjórnbúnaði. Klaki mun á næstunni auka úrval sjálfvirkra lausna auk þess sem fyrirtækið mun geta boðið viðskiptavinum sínum upp á uppsetningu róbóta af ýmsum gerðum. "Fyrirtækið er þekkt fyrir að framleiða einfaldan og áreiðanlegan búnað sem hefur reynst vel í krefjandi aðstæðum, til dæmis um borð í skipum og í fiskvinnslum," segir Páll.

Millidekksbúnaður í nýjan Baldvin Njálsson GK

„Það hefur verið mikið að gera hjá okkur síðustu mánuði. Þar ber hæst smíði á búnaði fyrir millidekk í nýjan frystitogara Nesfisks hf., Baldvin Njálsson GK. Okkar þáttur er framleiðsla á öllum færiböndum og stórum hluta búnaðar á millidekkinu, þ.e. frá móttöku að flokkun, að frátöldum hausvélum, roðdráttartækjum og flökunartækjum. Í búnaðinum okkar í verkinum nýtum við einmitt þá þekkingu sem við höfum á stjórnbúnaði til þess að auðvelda vinnuna og yfirsýn þeirra sem starfa við vinnslukerfið,segir Óskar.

Byltingarkenndar lestarlausnir í þróun

Hann segir að Klaki sé nú að vinna að hönnun nýrra lestarkerfa fyrir skip sem eru með ker í lestum. "Kerfið byggist á búnaði sem auðveldar flutning tómra keranna í lest. Við þekkjum báðir úr sjóstarfi að lestunarvinnan er erfið og kerin eru þyngri en áður. Útfærslan er blanda af færiböndum til að flytja afurðina og því sem við köllum Karakött, sem er búnaður sem auðveldar bátstjórum verulega að meðhöndla og færa tunnur. "Við stefnum að því að þetta kerfi verði í boði hjá okkur frá seinni hluta næsta árs," segir Óskar.

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta