Nýtt og endurbætt vefsvæði

Við bjóðum viðskiptavinum okkar velkomna á nýtt vefsvæði Klaka, www.klaki.is. Markmið vefsíðunnar er að gera vöruúrval okkar sýnilegra og auðvelda viðskiptavinum okkar að finna lausnir, hvort sem um er að ræða varahluti, nýsmíði eða sérsmíði.

Síðustu áratugi hefur Klaki sérhæft sig í hönnun og smíði á búnaði úr ryðfríu stáli og áli með áherslu á einfaldleika, styrk og gæði. Þar verður engin breyting á en á undanförnum árum hefur aukinn áhersla verið lögð á sjálfvirknivæðingu og fyrirtækið býður nú upp á ýmsar stýringar, hvort sem þær eru loftbundnar, vökva eða rafmagni.

Hjá Klaka starfa sérfræðingar með mismunandi sérhæfingu, allt frá blikkvinnu til vélaverkfræði róbóta.

Spurningarform eru aðgengileg á vefsíðunni sem hægt er að nýta ef þörf er á ráðgjöf eða frekari upplýsingum. Einnig er hægt að hafa samband með því að senda okkur tölvupóst á [email protected], hringja í 554-0000 eða kíkja í kaffi að Hafnarbraut 25, 200 Kópavogi. Heimasíðan er að hluta til enn í vinnslu og því er vöruúrvalið sem sýnt er á heimasíðunni ekki tæmandi yfirlit yfir vöruúrval Klaka.

Hér á síðunni undir Vörur Hér má sjá hluta af úrvali sem er í boði. Þjónustu sem Klaki býður upp á má einnig sjá á heimasíðunni. hér.

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta