Sjónarmið áhafnarinnar er ómissandi

Viðtal við Pál birtist nýlega á vef 200 mílna þar sem hann ræðir mikilvægi þess að hlusta á endanotendur við hönnun vinnslna. Hönnun millidekksins í Baldvin Njálsson var unnin í nánu samstarfi við skipstjóra skipsins, Arnar Óskarsson, og samstarfsfólk hans.

“Þetta er mikil vinna [að hanna vinnslu í skip] og þarf að vinna í mjög nánu samstarfi við áhöfnina. Það er lykilatriði til að tryggja að uppsetning slíkrar vinnslu gangi vel að áhöfnin komi að hönnuninni og leggi fram sína sýn, því það eru þeir sem standa við þessi tæki og vita hvar flöskuhálsarnir geta verið," segir Páll í viðtalinu.

Viðtalið má lesa í heild sinni hér.

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta