Klaki og Akraborg hafa undirritað samning um afhendingu tveggja vélakerfa í matvælaframleiðslu Akraborgar að Kalmansvöllum 6 á Akranesi. Kerfin eru til raðunar á dýrafóðurpokum á grindur fyrir suðu og þurrkun pokanna fyrir pökkun. Í kerfunum verða tveir Yaskawa GP50 iðnaðarvélmenni auk servo-drifinna hreyfikerfa til flutnings og raðunar á dýrafóðurpokunum. Frammistaða kerfanna er allt að 100 stykki á mínútu.



