Tvö þjarkakerfi í dýrafóðurvinnslu Akraborgar

Klaki og Akraborg hafa undirritað samning um afhendingu tveggja þjarkakerfa í matvælaframleiðslu Akraborgar að Kalmansvöllum 6 á Akranesi. Kerfin eru til áröðunar á dýrafóðurpokum á grindur fyrir suðu og þurrkun á pokum fyrir pökkun. Í kerfunum verða tveir Yaskawa GP50 iðnaðarþjarkar auk servo drifinna færslukerfa til flutnings og röðunar á dýrafóðurpokunum. Afköst kerfanna eru allt að 100 stk/mín.

T.v. Símon Elvar Vilhjálmsson, tæknistjóri hjá Akraborg og t.h. Óskar Pétursson framkvæmdastjóri Klaka

Share Now:

Contact us for inquiries

Scroll to Top