Íslensku sjávarútvegsverðlaunin, með stuðningi matvælaráðuneytisins og Kópavogsbæjar, voru veitt 18. september sl. í níunda sinn, að loknum fyrsta degi sýningarinnar IceFish 2024. Verðlaunin eru veitt fyrir árangur í íslenskum og alþjóðlegum sjávarútvegi, með sérstakri áherslu á nýsköpun og byltingarkenndar vörur. Klaki var meðal vinningshafanna í ár, en félagið hlaut verðlaun fyrir verðmætasköpun í vinnslugeiranum í flokki fyrirtækja með færri en 50 starfsmenn. IceFish 2024 sýningin var glæsileg að öllu leyti og við þökkum skipuleggjendum kærlega fyrir verðlaunin og frábærum gestum fyrir komuna á básinn okkar.









