Klaki hlýtur íslensku sjávarútvegsverðlaunin

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin, með stuðningi matvælaráðuneytisins og Kópavogsbæjar, voru veitt 18. september sl. í níunda skipti, að loknum fyrsta degi IceFish 2024 sýningarinnar. Verðlaunin eru veitt fyrir árangur í íslenskum og alþjóðlegum sjávarútvegi, með sérstakri áherslu á nýsköpun og byltingarkenndar vörur. Klaki var meðal vinningshafanna í ár, en félagið hlaut verðlaun fyrir verðmætasköpun í vinnslugeiranum í flokki fyrirtækja með undir 50 starfsmenn. IceFish 2024 sýningin var glæsileg í alla staði og við þökkum aðstandendum kærlega fyrir verðlaunin og frábærum gestum fyrir komuna á básinn okkar.

Share Now:

Contact us for inquiries

Scroll to Top