Samvinnuvél á braut fyrir Samherja Fiskeldi

Klaki hefur lokið sölu á samvinnuvélarkerfi til Silfurstjörnunnar, starfsstöðjar Samherja fiskeldis, en kerfið mun auka sjálfvirkni og bæta vinnsluferlið í landeldisstöðinni. Í kerfinu er Yaskawa HC30PL samvinnuvélmenni á línulegum leiðarspori, sem gerir vélmenni kleift að raða öskjum á alls sex pallastöðum. Strikamerkjaskönnun er notuð til að ákvarða á hvaða palli öskjurnar skuli raðast og til að halda utan um hvaða pöntun þær tilheyra. "Þetta er sérstaklega hentug lausn þar sem lítið pláss er og ekki er krafa um mjög mikla afköst, en engu að síður er verið að vinna með marga vöruflokka í einu," segir Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri Klaka, um kerfið. "Við reynum stöðugt að leita hagkvæmustu lausnanna fyrir viðskiptavini okkar, og þessi útfærsla er engin undantekning á því."“

Samvinnuvél á línulegum leiðarspori sem getur raðað á samtals 6 pallastöður. Strikamerkjaskanni ákvarðar hvert kassar eiga að fara en kerfið er jafnframt samþætt við kassalokun, kæli og spennuvél.

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta