Klaki hefur gengið frá sölu á samvinnuþjarkakerfi í Silfurstjörnuna, starfsstöð Samherja fiskeldis en kerfið mun auka sjálfvirkni og bæta vinnsluferlið í landeldisstöðinni. Í kerfinu er Yaskawa HC30PL samvinnuþjarki á línulegri færslubraut, sem gerir þjarkinum kleift að raða öskjum á alls sex brettastæði. Strikamerkjaskönnun er notuð til að ákvarða á hvaða bretti öskjurnar skulu raðast og halda utan um hvað pöntun þær tilheyra. “Þetta er sérstaklega hentug lausn þar sem lítið pláss er og ekki er krafa um mjög há afköst, en engu að síður er verið að vinna marga vöruflokka í senn” segir Óskar Pétursson framkvæmdastjóri Klaka um kerfið. “Við reynum sífellt að leita hagkvæmustu lausnanna fyrir viðskiptavini okkar, og þessi útfærsla er engin undantekning á því.”



