Sigurbjörg ÁR 67 komin til landsins

Nýjasta skip Ísfélagsins, Sigurbjörg ÁR 67, kom til landsins í Hafnarfirði í dag. Skipið er búið vinnslubúnaði frá Klaka, en á millidekki er meðal annars sjálfvirkur heilfiskflokkari með tegundargreiningu auk þess sem karalest skipsins er sjálfvirk og mannlaus. Kæli- og krapakerfi um borð koma frá kælismiðjunni Frost. Skipið er skráð 44,82 m og var smíðað í skipasmíðastöð Celiktrans í Istanbúl. Við óskum Ísfélaginu til hamingju með glæsilegt skip.

Sigurbjörg Ár 67 á siglingu á Marmarahafi
Úr notendaviðmóti stjórnkerfis Klaka um borð

Deildu núna:

Rúllaðu upp að efsta hluta