Nýjasta skip í flota Ísfélagsins, Sigurbjörg ÁR 67, kom til landsins í Hafnarfirði í dag. Skipið er búið vinnslubúnaði frá Klaka, en á millidekki er m.a. sjálfvirkur heilfiskflokkari með tegundargreiningu auk þess sem karalest skipsins er sjálfvirk og mannlaus. Kæli- og krapakerfi um borð koma frá kælismiðjunni Frost. Skipið er skráð 44.82 m og var smíðað í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl. Við óskum Ísfélaginu til hamingju með tilkomumikið skip.




