Klaki og Yaskawa hafa undirritað samning um sölu og þjónustu við Yaskawa Motoman þjarka á Íslandi. Með samningnum verður Klaki „Yaskawa Select Partner“ fyrir Ísland, en rík hefð er fyrir framleiðslu og þróun þjarka hjá Yaskawa, sem kynntu sinn fyrsta þjark á markað, Motoman L10 róbotann, árið 1977. Yaskawa hafa síðan boðið breitt vöruframboð í þjörkum, og bjóða 5- og 6-ása iðnaðarþjarka, 6 ása samvinnuþjarka, delta þjarka og SCARA róbota.



