Klaki lauk nýverið innleiðingu nýs framleiðslukerfis fyrir Mjólkursamsöluna í vinnslu fyrirtækisins á Selfossi. Kerfið er til gæðaskoðunar og pökkunar á „skvísum“, en skyrskvísurnar frá MS eru flestum vel kunnugar. Skvísu pakkningarnar eru gæðaskoðaðar með myndgreiningarlausn frá Klaka strax eftir áfyllingu. Gæðaskoðunin kannar áprentun á umbúðirnar og tryggir að tappinn hafi verið rétt settur á. Skvísurnar fara svo í sérsmíðaða pökkunarvél þar sem átta stykkjum er safnað saman úr stöðugu flæði og þær færðar ofan í pappaöskju. Öskjurnar eru reistar í kassa uppbrotsvél frá Klaka. Úr pökkunarvélinni fara tilbúnar öskjur í brettastöflun, en þar staflar Yaskawa HC30PL þjarki frá Klaka þeim á bretti.
Sjón er sögu ríkari



